Hææ
.........
langt síðan ég
bloggaði síðast hérna á mýslunum!
en allavena þá er nóg að gera
núna þessa dagana. Þetta veður er alveg búið að vera ömurlegt þessa
viku og ég ætla rétt að vona að það lagist eitthvað eftir
helgi!
Núna er ég annars komin heim úr vinnu og er
lííklegast að fara austur á eftir, fer víst ekki í ökuskólann núna
um helgina, hafði ekki alveg rétt fyrir mér
það er ekki
fyrr en næst fimmtud og föstud. En þá ætla ég að fara og reyna
drífa þetta af, enda er maður komin með bíl sem bíður á verkstæðinu
eftir að verða sóttur!
Rosalega sátt með hann, fékk bara á
325.000 en hann er talinn vera 1.490.000 virði!! Bara brjálað hehe,
enda bauð ég sjálf í hann
En þetta er semsagt toyota corolla 2004
árgerð
En já ég hef
voða lítið að segja nema bara þetta vanalega, það var svo frí í gær
en ég gerði ekki mikið nema jú ég fór e-ð í kringluna og ætlaði að
kaupa mér buxur og bíkíni en nei auðvitað fann ég ekkert! En svo
var ammæli hjá litla bró hennar Elmu
og ég át yfir mig af kökum:/
allir að segja manni að éta meira og auðvitað át maður meira!!
kreiizí!
En já ég er
farin að gera eitthvað annað, vera sniðug og laga til?
Njahh
dno!
Ég býst við að þið hafið
öll horft á Ungrú Ísland í gær!

Mynd af þeim sem lentu í 3 efstu
sætunum!
En já þeir sem sáu ekki þegar Unnur Birna
datt greyið í gær getið séð það á þessum hérna linki hérna fyrir
neðan, ekki hægt annað en að hlægja!!
http://www.youtube.com/watch?v=csR4de6EIoQ
Een ég ætla að
fara fá mér að borða svo gera mig reddí til að fara austur,
CYA!
Guddulíus
P.S. Stelpur
verðum svo að skella einum flottum banner á síðuna!! Kominn tími
til að gera þessa síðu kreizí flotta!
Eins og bílinn minn nema minn er
dökkgrænn!